Hoppa yfir valmynd
16. september 2008 Dómsmálaráðuneytið

Jón Magnússon skipaður skrifstofustjóri í dóms- og kirkjumálaráðuneytinu

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra hefur skipað Jón Magnússon viðskiptafræðing, MBA, til að vera skrifstofustjóri rekstrar- og fjármálaskrifstofu dóms- og kirkjumálaráðuneytisins frá og með 1. október nk. til fimm ára. Jón var settur skrifstofustjóri í ráðuneytinu frá september 2007 til ágúst 2008. Hann starfaði áður í fjármálaráðuneytinu.
Aðrir umsækjendur um starfið voru Agnes Karlsdóttir og Jón Einar Sverrisson.

 

 

Reykjavík, 16. september 2008

 





Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum