Eldri starfsmenn - akkur vinnustaða
Málþing á vegum verkefnisstjórnar 50+ haldið í Ketilhúsi á Akureyri
fimmtudaginn 25. september 2008 kl. 13.00–16.00
Ráðstefnustjóri: Kristín Ástgeirsdóttir
Dagskrá
- 13.00
Ávarp félags- og tryggingamálaráðherra Jóhönnu Sigurðardóttur - 13.15
Hjalti Jóhannesson, sérfræðingur og aðstoðarforstöðumaður Rannsókna- og þróunarmiðstöðvar Háskólans á Akureyri, og Kjartan Ólafsson, lektor við Háskólann á Akureyri, gera grein fyrir helstu niðurstöðum úr rannsókn á samfélagsáhrifum álvers- og virkjunarframkvæmda á Austurlandi. Þeir hafa tekið út áhrif á aldurshópinn 50+ og kynna niðurstöður vinnu sinnar. - 13.45
Sigrún Jónsdóttir, starfsmaður Alcoa Fjarðaáls, segir frá starfsmannastefnu fyrirtækisins og ráðningum með tilliti til aldurshópsins 50+. Hvort merkjanleg sé einhver sérstaða þessa aldurshóps. - 14.05
Grétar Þór Eyþórsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, fjallar um 50+ hópinn í háskólunum, þarfir atvinnulífsins og framboð landsbyggðarháskólanna. - 14:25
Kaffi - 14.45
Sigrún Björk Jakobsdóttir, bæjarstjóri Akureyrar, gerir grein fyrir áherslum bæjarins í starfsmannamálum með tilliti til aldurshópsins 50+. Hvort starfsmannastefnan taki á einhvern hátt tillit til þessa aldurshóps og hvort hann hafi merkjanlega einhverja sérstöðu á þeirra markaði. - 15.05
Óli Halldórsson, forstöðumaður Þekkingarseturs Þingeyinga, fjallar um símenntun aldurshópsins 50+, tækifæri og hindranir og samspil menntunarþarfa mannaflans og samfélaganna. - 15.35
Samantekt og ráðstefnulok - 16.00
Léttar veitingar í boði verkefnisstjórnar 50+
Sjá auglýsingu um málþing:
- Eldri starfsmenn - akkur vinnustaða (PDF, 4MB)