Styrkir vegna stuðnings við dönskukennslu
Samkvæmt samningi milli menntamálaráðuneyta Íslands og Danmerkur um stuðning við dönskukennslu á Íslandi leggur menntamálaráðuneyti Íslands árlega fram fjármagn til verkefna á eftirfarandi sviðum, sbr. 4. gr. samningsins:
Er hér auglýst eftir umsóknum um styrki til verkefna í eftirtöldum málaflokkum:
- Endurmenntunarnámskeið fyrir dönskukennara í grunn- og framhaldsskólum.
- Námsefnisgerð í dönsku fyrir grunn- og framhaldsskóla. Námsefni sem felur í sér nýbreytni í dönskukennslu hefur forgang við úthlutun.
- Rannsóknir og þróunarstarf á sviði náms og kennslu í dönsku sem erlends tungumáls.
- Vitundarvakning um mikilvægi dönskukunnáttu fyrir Íslendinga.
Samstarfsnefnd sem skipuð er fulltrúum beggja landanna metur umsóknir og gerir tillögur um styrkveitingar.
Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneyti í síðasta lagi mánudaginn 20. október nk. á sérstökum eyðublöðum sem þar fást og sem jafnframt má nálgast á vef ráðuneytisins. Þar er einnig að finna samning menntamálaráðuneyta Íslands og Danmerkur. Nánari upplýsingar veitir Sesselja Snævarr, deildarsérfræðingur í menntamálaráðuneyti, sími 545 9500, netfang: [email protected].