Ólafur K. Ólafsson, lögreglustjóri og sýslumaður Snæfellinga, settur lögreglustjóri á Suðurnesjum til áramóta
Ólafur K. Ólafsson, lögreglustjóri og sýslumaður Snæfellinga, hefur verið settur lögreglustjóri á Suðurnesjum frá 1. október til áramóta. Jafnframt hefur Jón F. Bjartmarz, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, verið settur aðstoðarlögreglustjóri embættisins og Halldóri Halldórssyni, fjármálastjóra lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, verið falið að taka að sér fjármálastjórn þess til sama tíma.
Embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum verður auglýst til umsóknar og veitt frá og með næstu áramótum.
Daði Jóhannesson, fulltrúi sýslumanns Snæfellinga og staðgengill hans, hefur verið settur sýslumaður Snæfellinga frá 1. október til áramóta.
Reykjavík, 30. september 2008