Fagstöður hjá UNESCO fyrir ungt fólk
Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna, UNESCO, hefur boðið þeim aðildarlöndum, sem eiga engan eða fáa starfsmenn hjá stofnuninni, að senda allt að 12 umsóknir frá ungu fólki um sérstakar fagstöður í höfuðstöðvunum í París. Þetta er liður í því að jafna landfræðilega dreifingu starfsfólks, auka hlut kvenna og auka stöðugleika í starfsliðinu. Umsækjendur þurfa m.a. að uppfylla eftirtalin skilyrði:
- vera yngri en 30 ára 31. desember 2008
- hafa háskólagráðu á sviði: menntunar, umhverfisfræði, félags- og mannvísinda, menningar, upplýsingafræði eða fjármála (nokkur sérsvið eru nefnd frekar)
- hafa mjög gott vald á ensku eða frönsku sem eru vinnumál stofnunarinnar. Færni í báðum tungumálum er kostur.
Sækja þarf um á sérstökum umsóknareyðublöðum sem fást hjá íslensku UNESCO-nefndinni. Umsóknarfrestur til íslensku UNESCO-nefndarinnar er 1. desember nk.
Nánari upplýsingar veitir Einar Hreinsson, ritari íslensku UNESCO-nefndarinnar í síma 545 9500 eða á netfanginu: [email protected].
Frekari upplýsingar um UNESCO eru að finna á www.unesco.org.