Hoppa yfir valmynd
8. október 2008 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Norræna skólahlaupið 2008

Til skólastjóra grunnskóla

„Norræna skólahlaupið“ mun fara fram á öllum Norðurlöndunum á tímabilinu 1. október til 1. apríl nk. Verður þetta í 24. skiptið sem Íslendingar taka þátt í þessu samnorræna hlaupi og hafa staðið sig mjög vel í samanburði við aðrar norrænar þjóðir, þar sem allt að því helmingur nemenda í grunnskólum landsins hefur hverju sinni tekið þátt í hlaupinu.
Með Norræna skólahlaupinu er leitast við að hvetja nemendur skólanna til þess að æfa hlaup og aðrar íþróttir reglulega og stuðla þannig að betri heilsu og vellíðan. Er því hér hvatt til þess að allir skólar verði með í Norræna skólahlaupinu 2008 en þátttakendur geta valið hve langt þeir hlaupa þ.e. 2.5 km, 5 km eða 10 km. Að hlaupinu loknu fær hver þátttakandi og einnig hver skóli viðurkenningarskjal þar sem greint er frá árangri og heildarúrslit verða birt í fjölmiðlum og send skólum landsins. Það skal undirstrikað að hér er fyrst og fremst stofnað til hollrar hreyfingar en ekki keppni og áhersla á það lögð að allir verði með. Mjólkursamsalan, MS, hefur styrkt útgáfu viðurkenningarskjala á myndarlegan hátt og samstarfsaðili að þessu verkefni er einnig Íþróttakennarafélag Íslands.
 Þess er vænst að forráðamenn skóla leggi okkur lið með skipulagningu og jákvæðri kynningu á hlaupinu í skólanum og í samráði við kennara og annað starfsfólk skólans, og hvetji nemendur til þátttöku í hlaupinu þegar það fer fram.

Allar frekari upplýsingar um Norræna skólahlaupið 2008 er að fá hjá íþrótta- og æskulýðsdeild í menntamálaráðuneyti og stjórn Íþróttakennarafélags Íslands.

Með von um góðan árangur.
f.h. Norrænu skólaíþróttanefndarinnar,



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta