Hoppa yfir valmynd
15. október 2008 Matvælaráðuneytið

Tilmæli frá ríkisstjórn Íslands.

Tilmæli frá ríkisstjórn Íslands.

Í ljósi efnahagsástandsins hefur ríkisstjórn Íslands ákveðið að beina þeim tilmælum til Fjármálaeftirlitsins, f. h. skilanefndar Glitnis hf. og Kaupþings hf., og til stjórna Nýja Landsbankans hf. og Nýja Glitnis hf., að frystar verði afborganir skuldara á myntkörfulánum, sérstaklega vegna húsnæðislána, þar til ró kemst á gjaldeyrismarkaðinn.  Einnig er þeim tilmælum beint til sömu aðila að fólki í greiðsluerfiðleikum verði boðin sömu úrræði og til staðar eru hjá Íbúðalánasjóði vegna greiðsluerfiðleika. 

Auk þess er óskum beint til annarra fjármálafyrirtækja að veita sömu fyrirgreiðslu.

Tekið er fram að framangreind tilmæli og óskir hafa ekki áhrif á heimild til handa Íbúðalánasjóði til að taka yfir húsnæðislán sem veitt hefur verið af öðrum fjármálafyrirtækjum og gilda á meðan unnið er að yfirfærslu húsnæðislána til Íbúðalánasjóðs.

 

Viðskiptaráðuneytinu

14. október 2008



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta