Verkefnasjóður sjávarútvegsins
Verkefnasjóður sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, deild um sjávarrannsóknir á samkeppnissviði, auglýsir eftir umsóknum um styrki til rannsókna- og þróunarverkefna.
Sjóðurinn mun fyrst og fremst styrkja rannsóknir á sjávarlífverum sem nú eru nytjaðar eða sem mögulegt væri að nytja. Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að framlag til deildar sjóðsins um sjávarrannsóknir á samkeppnissviði verði hækkað um 25 m.kr. á árinu. Framlag til sjóðsins verður því 75 m.kr. á árinu 2008. Þessari aukningu verður nú að öðru jöfnu varið til að hækka styrki til styttri, hagnýtra verkefna.
Allir geta sótt um styrki; einstaklingar, fyrirtæki, rannsókna- og háskólastofnanir. Í stærri verkefnum er sérstaklega hvatt til samstarfs mismunandi aðila með þátttöku vísindamanna víða af landinu.
Við mat umsókna verður lögð áhersla á nýnæmi verkefnisins m.t.t. nýrrar þekkingar og/eða aukinna nýtingarmöguleika á lífríki sjávar. Á árinu 2008 verða styrkt allt að 12 verkefni að hámarki 5 m.kr. hvert og um 15 minni verkefni 1-2 m.kr. hvert.
Umsóknarfrestur er til 10. nóvember 2008 og skulu umsóknir sendar til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík. Umsóknirnar skulu einnig berast á rafrænu formi á netfangið [email protected].
Umsóknir sem berast eftir 10. nóvember verða ekki teknar gildar nema póststimpill sýni að umsóknin hafi verið póstlögð ekki síðar en þann dag.
Þeir sem fengu styrk úr sjóðnum á árinu 2007 og hyggjast sækja um framhaldsstyrk skulu skila skýrslu um stöðu verkefnisins, ella koma viðkomandi umsóknir ekki til greina við úthlutun.