Hoppa yfir valmynd
21. október 2008 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Fjölbreytt verkefni í innflytjendamálum

Auglýst var í fyrsta sinn árið 2007 eftir umsóknum um styrki í þróunarsjóð innflytjendamála. Alls hlutu sautján verkefni og rannsóknir styrk út sjóðnum. Hægt að nálgast skýrslur um verkefnin og rannsóknirnar sem þegar er lokið á heimasíðu Háskólaseturs Vestfjarða en setrið hefur umsjón með sjóðnum.

Nú er opið fyrir umsóknir í þróunarsjóð innflytjendamála í annað sinn og rennur umsóknarfrestur út 31. október 2008. Að þessu sinni er sérstök áhersla lögð á eftirfarandi atriði:

  • Stöðu innflytjenda á vinnumarkaði, meðal annars í ljósi breytts efnahagsástands; starfsþjálfun, starfsnám, réttindi og skyldur.
  • Fræðslu gegn fordómum og aðrar aðgerðir til að koma í veg fyrir mismunun eða fordóma vegna uppruna, kynþáttar eða trúarbragða.

Önnur verkefni koma einnig til álita.

Nánari upplýsingar eru veittar á heimasíðu sjóðsins.  



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta