Stefnumót um rammaáætlun
Staða rammaáætlunar verður til umfjöllunar á 9. Stefnumóti umhverfisráðuneytisins og Stofnunar Sæmundar fróða um sjálfbæra þróun. Á fundinum mun Svanfríður Jónasdóttir, formaður verkefnastjórnar 2. áfanga rammaáætlunar, flytja erindi um rammaáætlun um vernd og nýtingu vatnsafls og háhitasvæða. Bergur Sigurðsson, framkvæmdastjóri Landverndar, flytur einnig erindi.
Fundurinn fer fram í fundarsal Þjóðminjasafnsins miðvikudaginn 29. október kl. 12:00 til 13:30. Stefnumótin eru opnir fundir um umhverfismál sem efst eru á baugi hverju sinni.