Nýr skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu
Björn Rúnar Guðmundsson, hagfræðingur, hefur í dag verið settur skrifstofustjóri á nýrri efnahags- og alþjóðafjármálaskrifstofu forsætisráðuneytisins frá 1. nóvember til 31. ágúst 2009.
Björn Rúnar er hagfræðingur að mennt og hefur starfað á Þjóðhagsstofnun, í fjármálaráðuneytinu og nú síðast í greiningardeild Landsbanka Íslands.
Reykjavík 31. október 2008