Tímabundin niðurfelling álags vegna skila á staðgreiðslu
Fjármálaráðuneytið, fréttatilkynning nr. 20/2008
Samkvæmt 20. gr. laga nr. 45/1987, um staðgreiðslu opinberra gjalda, er 17. nóvember eindagi staðgreiðslu launamanna, útsvars launamanna, álagðra skatta launamanna og tryggingagjalds launagreiðenda og skila á skilagrein vegna októbermánaðar. Í 3. mgr. 20. gr. laganna kemur fram að hafi launagreiðandi eigi staðið skil á staðgreiðslu á eindaga skuli hann sæta álagi skv. 28. gr. laganna. Í 6. mgr. 28. gr. laganna kemur fram að fella megi niður álag ef launagreiðandi færir gildar ástæður sér til afsökunar og metur skattstjóri það í hverju einstöku tilviki hvað telja skuli gildar ástæður í þessu sambandi.
Vegna áframhaldandi truflana á bankastarfsemi hér á landi og áhrifa þess á atvinnulífið telur ráðuneytið að enn séu gildar ástæður til að beita þeirri heimild sem fram kemur í 6. mgr. 28. gr. laga nr. 45/1987, til tímabundinnar niðurfellingar álags vegna skila á staðgreiðslu fyrir september.
Mun ráðuneytið því beina þeim tilmælum til skattstjóra og tollstjórans í Reykjavík að fellt verði tímabundið niður álag vegna þeirra skila á staðgreiðslu sem er á eindaga 17. nóvember og gildi sú niðurfelling í eina viku eða til 24. nóvember nk.
Reykjavík 14. nóvember 2008