Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar á degi íslenskrar tungu 2008
hátíðasal Háskóla Íslands 16. nóvember. Auk þess voru einnig veittar
sérstakar viðurkenningar fyrir störf í þágu íslenskrar tungu.
Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar árið 2008 voru afhent í hátíðardagskrá í hátíðasal Háskóla Íslands 16. nóvember. Auk þess voru einnig veittar sérstakar viðurkenningar fyrir störf í þágu íslenskrar tungu.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráðherra veitti Herdísi Egilsdóttur kennara Verðlaun Jónasar Hallgrímssonar 2008.
Í rökstuðningi ráðgjafarnefndar segir:
„Með hverri kynslóð fæðist tungumálið upp á nýtt. Það þroskast og þróast með nýjum notendum. Tungan er um leið framandi strönd landnema sinna. Grunnskólakennarar þjóðarinnar eru leiðsögumenn í þeirri för“.
Herdís Egilsdóttir hlaut í verðlaun eina milljón króna og ritsafn Jónasar Hallgrímssonar í hátíðarbandi.
Viðurkenningar:
Í reglum menntamálaráðuneytis um verðlaun og viðurkenningar á degi íslenskrar tungu segir að auk Verðlauna Jónasar Hallgrímssonar sé heimilt að veita sérstakar viðurkenningar fyrir stuðning við íslenska tungu.
Menntamálaráðherra ákvað að veita tvær viðurkenningar 2008.
Önnur er veitt Landnámssetri Íslands í Borgarnesi og hina fær Útvarpsleikhúsið.
Í rökstuðningi ráðgjafarnefndar segir:
Landnámssetur Íslands sækir þjóðararfinn í hérað og gerir hann aðgengilegan fyrir íslenska jafnt sem erlenda gesti og fyrir alla aldurshópa. Á lifandi hátt ferðast safnagestir aftur í tímann og sögurnar og finna fyrir nálægð
Egils á Borg og samferðamanna á áhrifamikilli Egilssýningu þar sem handverk og hugverk spinna órjúfanlega sagnavoð. Landnámssýning varpar ljósi á upphaf þjóðar og skýrir um margt þá ferð sem framundan var í gegnum aldir og hefur skilað Íslendingum á framtíðarveg. Þá eru ótaldar leiksýningar á Sögulofti sem vakið hafa mikla og verðskuldaða athygli og varpað ljósi á Egilssögu á litríkan og frumlegan hátt. Einnig stendur Landnámssetur fyrir sagnakvöldum þar sem sögumenn viðhalda gamalli sagnahefð og tungumálið fær notið sín í sterkri og einfaldri mynd kynngimagnaðrar frásagnar. Landnámssetur teygir starfsemi sína út fyrir veggi safnsins þar sem vörður hafa verið reistar á sagnaslóð í og við Borgarnes og leiðarvísir fyrir vörðurnar hefur verið útbúinn svo ganga megi um sögustaði og upplifa Eglu á vettvangi atburða. Á Landnámssetri er unnið metnaðarfullt starf þar sem efniviðurinn er bókmenntir, saga, arfur og umfram allt íslensk tunga og menning.
Útvarpsleikhúsið
Í sjötíu ár hefur leiklistarflutningur verið fastur liður á dagskrá Ríkisútvarpsins. Árið 1939 voru leikrit með vinsælasta efni útvarpsins og voru það árið flutt á fimmta tug verka. Ríkisútvarpið geymir dýrmæta heimild um íslenska leikritun og er þar mikilvægt brot af menningararfi þjóðarinnar. Útvarpsleikhús er sjálfstæð listgrein. Sviðið verður til í hugum hlustenda og stækkar og minnkar eftir hugarflugi hvers og eins. Ekkert er ómögulegt og fá listform höfða jafn sterkt til ímyndunaraflsins, eða eins og sagt er: ,,Í útvarpinu loka menn augunum til þess að sjá betur.“ Í hljóðleikhúsinu verður til framsækin leiklist sem speglar íslenskan veruleika á spennandi hátt. Þar er tungumálið stóra verkfærið sem leikur á hugann. Þar hafa margir þekktustu listamenn þjóðarinnar stigið á svið og haldið tryggð við listformið. Í amstri nútímans og hringiðu tæknialdar tekst hljóðleikhúsinu enn að fanga hlustendur, stöðva tímann og draga leikhúsgesti sína inn í ævintýraheima með tungumálið eitt að vopni. Það er því sönn ánægja að veita Útvarpsleikhúsinu viðurkenningu fyrir samfellt og ómetanlegt menningarstarf sem sjötíu árum frá upphafi sínu er enn í fullum blóma.
Viðurkenningarhafar fengu listaverk eftir Brynhildi Þorgeirsdóttur.
Í ráðgjafarnefnd um verðlaun og viðurkenningar á degi íslenskrar tungu sitja Kristján Árnason, Guðrún Egilson og Kristín Helga Gunnarsdóttir.
Á vef dags íslenskrar tungu http://www.menntamálaráðuneyti.is/menningarmal/dit eru frekari upplýsingar um verðlaunin, hátíðardagskrána og aðra viðburði undir merkjum dagsins.