Hoppa yfir valmynd
8. desember 2008 Matvælaráðuneytið

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á ostum frá Noregi.

Auglýsing um tollkvóta vegna innflutnings á ostum frá Noregi.

Með vísan til 65. gr. A laga nr. 99/1993 um framleiðslu, verðlagningu og sölu á búvörum, með síðari breytingum og með vísan til reglugerðar dags. 28. nóvember 2008 er hér með auglýst eftir umsóknum um tollkvóta fyrir eftirfarandi innflutning á smurostum frá Noregi og með upprunavottorð þaðan fyrir tímabilið 1. janúar – 31 desember  2009. 

 

 

Vara

Tímabil

Vörumagn

Verðtollur

Magntollur

Úr tollskrárnr.:

 

 

kg

%

kr./kg

0406.3000

Smurostur

01.01.-31.12.09

13.000

0

0

 

Berist umsóknir um meira magn innflutnings en auglýstum tollkvóta nemur, skal láta hlutkesti ráða úthlutun tollkvóta vörunnar. Úthlutun er ekki framseljanleg. Innflutningur verður því aðeins leyfður að uppfyllt séu ákvæði reglugerðar vegna innflutnings á landbúnaðarvörum nr. 509/2004.

Skriflegar umsóknir skulu berast til sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins, Skúlagötu 4, 150 Reykjavík, fyrir kl. 15:00 mánudaginn 15. desember nk.

 

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu,

8. desember 2008.

 



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta