Hækkun atvinnuleysisbóta flýtt
Félags- og tryggingamálaráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, hefur í samráði við forsætisráðherra, fjármálaráðherra og utanríkisráðherra ákveðið að flýta hækkun atvinnuleysisbóta sem átti að koma til framkvæmda 1. mars næstkomandi í samræmi við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 17. febrúar 2008 og gerð var í tengslum við kjarasamninga á almennum vinnumarkaði.
Þann 1. mars næstkomandi var gert ráð fyrir að atvinnuleysisbætur ættu að hækka um 13.500 kr. til samræmis við lægstu laun á almennum vinnumarkaði. Ákveðið hefur verið að grunnatvinnuleysisbætur munu hækka um 13.500 kr. frá 1. janúar næstkomandi í stað 1. mars eins og áætlað hafði verið. Samhliða munu hámarkstekjutengdar atvinnuleysisbætur hækka um sama hlutfall í samræmi við fyrrnefnda yfirlýsingu og verða þá 242.636 kr. á mánuði í stað 220.729. kr. áður. Félags- og tryggingamálaráðherra hefur undirritað reglugerð þessa efnis.