Flutningar á sendiherrum
Eftirtaldir flutningar á sendiherrum eru ákveðnir í upphafi árs:
Hjálmar W. Hannesson fastafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum í New York tekur við sem sendiherra Íslands í Washington.
Albert Jónsson sendiherra í Washington tekur við sem aðalræðismaður í Þórshöfn.
Eiður Guðnason aðalræðismaður í Þórshöfn mun láta af störfum.
Gunnar Pálsson sendiherra í Nýju Delhí flyst til starfa sem fastafulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum í New York og mun Finnbogi Rútur Arnarson, sendifulltrúi, veita sendiráðinu forstöðu tímabundið.
Guðmundur Eiríksson sendiherra í Pretoríu tekur við starfi prótókollstjóra í utanríkisráðuneytinu í Reykjavík.
Helgi Ágústsson prótókollstjóri mun láta af störfum.