Embætti vararíkissaksóknara laust til umsóknar
Embætti vararíkissaksóknara hefur verið auglýst laust til umsóknar. Dómsmálaráðherra skipar í embættið frá og með 1. febrúar 2009. Skipunin er ótímabundin.
Umsækjendur um embættið þurfa að uppfylla lagaskilyrði til skipunar í dómaraembætti við Hæstarétt, sbr. 20. gr. sakamálalaga nr. 88/2008.
Umsóknir berist dóms- og kirkjumálaráðuneytinu, Skuggasundi 1, 101 Reykjavík, eigi síðar en 26. janúar nk.