Hoppa yfir valmynd
14. janúar 2009 Dómsmálaráðuneytið

Settur skrifstofustjóri lagaskrifstofu

Björn Bjarnason dóms- og kirkjumálaráðherra hefur sett Bryndísi Helgadóttur til að gegna embætti skrifstofustjóra lagaskrifstofu ráðuneytisins, meðan á leyfi Rögnu Árnadóttur, skipaðs skrifstofustjóra, stendur. Rögnu hefur verið falið að gegna embætti skrifstofustjóra í forsætisráðuneyti í sex mánuði og vera jafnframt staðgengill ráðuneytisstjóra. Sjá nánar í frétt frá forsætisráðuneyti.

Þórunn J. Hafstein, skrifstofustjóri dómsmála- og löggæsluskrifstofu, verður staðgengill ráðuneytisstjóra meðan á leyfi Rögnu stendur.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum