Hoppa yfir valmynd
15. janúar 2009 Matvælaráðuneytið

Nr. 1/2009 - Árlegar viðræður Íslendinga og Færeyinga um fiskveiðisamninga þjóðanna

Jacob Vestergaard og Einar K. Guðfinnsson
Jacob Vestergaard og Einar K Guðfinnsson
Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og Jacob Vestergaard starfsbróðir hans í Færeyjum hittust í Reykjavík í dag til að ganga frá fiskveiðisamningi Íslendinga og Færeyinga fyrir árið 2009.

Samkvæmt samningnum fá færeysk skip heimild til að veiða 30 þúsund lestir af loðnu við Ísland á loðnuvertíðinni 2009/2010 svo fremi að útgefinn kvóti verði a.m.k. 500 þúsund lestir. Sé gefinn út minni kvóti fá Færeyingar 5% í sinn hlut. Færeyingar hafa heimild til að frysta loðnu og vinna um borð og landa loðnu til manneldis erlendis. Mega þeir þannig frysta 3/4 kvótans en þó þannig að aldrei fari meira en 1/3 kvótans til manneldisvinnslu eftir 15. febrúar sé útgefinn kvóti 500 þúsund lestir eða minna. Sé útgefinn kvóti meira en 500 þúsund lestir er Færeyingum heimilt að frysta 2/3 kvótans fyrir 15. febrúar.

Samkomulag er um að þjóðirnar fái áfram að veiða kolmunna og norsk-íslenska síld innan lögsögu hvorrar annarrar. Hámarksfjöldi íslenskra skipa í færeysku lögsögunni hverju sinni við kolmunnaveiðar verður áfram 12.

Botnfiskveiðiheimildir Færeyinga við Ísland verða óbreyttar á árinu 2009. Færeysk skip hafa því heimild til að veiða 5.600 lestir af botnfiski á árinu. Heildarafli þorsks verður þó aldrei meiri en 1.200 lestir og lúðuafli aldrei meiri en 45 lestir.

Íslensk skip hafa heimild til að veiða 2.000 lestir af Hjaltlandssíld við Færeyjar og 1.300 lestir af makríl.

Þá var ákveðið að fulltrúar landanna hittist á vormánuðum til að ræða sérstaklega eftirlit með veiðum í lögsögum Íslands og Færeyja. Markmið með slíkum fundi er að fara yfir framkvæmd eftirlitsins, hvernig það megi bæta og tryggja enn betur samvinnu þeirra sem því sinna.

Auk þessa ræddu ráðherrarnir ýmis önnur sameiginleg hagsmunamál, m.a. samstarf innan alþjóðlegra stofnana sem og um nýtingu annarra sameiginlegra stofna á vettvangi svæðabundinna fiskveiðistjórnunarstofnana.

Samningurinn verður formlega staðfestur með nótuskiptum milli utanríkisráðherra Íslands og Færeyja og í kjölfarið staðfestur af Alþingi.

Á meðfylgjandi mynd eru Jacob Vestergaard sjávarútvegsráðherra Færeyja og Einar K. Guðfinnsson sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherrra.

Jacob Vestergaard og Einar K. Guðfinnsson

Jacob Vestergaard og Einar K. Guðfinnsson

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta