Hoppa yfir valmynd
15. janúar 2009 Utanríkisráðuneytið

Samstarfssamningur um viðskipti við Bandaríkin undirritaður

Undirritun samstarfssamnings við Bandaríkin
Undirritun samstarfssamnings við Bandaríkin

Undirritaður var í dag rammasamningur um samstarf um viðskipti og fjárfestingar á milli Íslands og Bandaríkjanna. Stjórnandi Viðskiptaskrifstofu Bandaríkjanna fyrir Evrópu og Mið-Austurlönd, Christopher S. Wilson, og starfandi utanríkisráðherra, Össur Skarphéðinsson, undirrituðu samninginn.

Helsta markmið samningsins er að styrkja samstarf á milli íslenskra og bandarískra stjórnvalda á sviði viðskipta og fjárfestinga. Mælir samningurinn fyrir um stofnun formlegs samráðsvettvangs íslenskra og bandarískra stjórnvalda um viðskipti og fjárfestingar. Fulltrúar utanríkisráðuneytisins og Viðskiptaskrifstofu Bandaríkjanna fara sameiginlega með formennsku á þessum vettvangi, en að öðru leyti er hann skipaður fulltrúum frá viðeigandi stofnunum eða einkaaðila, eftir atvikum.

Ráðherrarnir vonast til að samráð á grundvelli samningsins styrki og auki viðskipti landanna. Þá lýsti starfandi utanríkisráðherra áhuga íslenskra stjórnvalda á að tryggja Íslendingum aðgang að sérstökum vegabréfsáritunum til Bandaríkjanna sem ætluð eru starfsmönnum erlendra fyrirtækja og fjárfestum.

Viðskipti landanna árið 2007 námu sem svarar til 100 milljörðum ísl. kr., þar af nam innflutningur frá Bandaríkjunum 75 milljörðum ísl. kr.



Efnisorð

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta