Hoppa yfir valmynd
25. janúar 2009 Matvælaráðuneytið

Björgvin G. Sigurðsson hefur í dag beðist lausnar frá embætti viðskiptaráðherra í ríkisstjórn Geirs H. Haarde.

Björgvin G. Sigurðsson segir af sér ráðherraembætti
BGS

Fréttatilkynning

Björgvin G. Sigurðsson hefur í dag beðist lausnar frá embætti viðskiptaráðherra í ríkisstjórn Geirs H. Haarde.

Tilkynning hans til forsætisráðherra er svohljóðandi:

Hæstvirtur forsætisráðherra,

Ég biðst í dag lausnar frá embætti viðskiptaráðherra í 2. ráðuneyti þínu. Jafnframt hef ég kynnt þá ákvörðun mína formanni stjórnar Fjármálaeftirlitsins og mun hann segja af sér í kjölfar þessa. Þá hef ég óskað eftir því við stjórn Fjármálaeftirlitsins að hún gangi frá starfslokum við forstjóra eftirlitsins og í kjölfarið segi sér.

Mér var sýnt mikið traust þegar ég var útnefndur ráðherra í ríkisstjórn þinni og gekk til verks í fullvissu þess að hún gæti nýtt stóran meirihluta sinn á Alþingi til þess að koma fram mikilvægum umbótum. Ég kveð ríkisstjórnina reynslunni ríkari og þakka fyrir góð persónuleg samskipti.

Frá því að hin alþjóðlega lánsfjárkreppa skall á hefur ríkisstjórnin gripið til víðtækra aðgerða til að takmarka tjón heimila og atvinnulífs. Í þessi verkefni var ráðist af brýnni þjóðarnauðsyn til að tryggja að hér myndaðist ekki neyðarástand sem leitt hefði til enn frekari hörmunga fyrir samfélagið allt.

Jafnframt þessum bráðaaðgerðum var ljóst að skapa þyrfti nýja samfélagslega sátt, þar sem traust ríkir um leikreglur og lýðræðisleg vinnubrögð, og að lagðar yrðu nýjar línur fyrir íslenskt efnahagslíf og stjórnkerfi. Þetta hefur ríkisstjórninni mistekist. Með ákvörðun minni í dag vil ég axla minn hluta af ábyrgðinni á því.

Ástæða ákvörðunar minnar er sú sannfæring mín að nauðsynlegt sé að ryðja brautina fyrir uppgjör og uppbyggingu sem byggi á trausti almennings. Forsendur fyrir því að skapa frið og traust í samfélaginu til endurreisnar eru meðal annars þær að stjórnmálamenn og stjórnendur stofnana samfélagsins axli ábyrgð.

Það er skoðun mín að stjórn Fjármálaeftirlitsins og starfsmenn stofnunarinnar hafi unnið mikið og gott starf við að stjórna uppgjöri á gömlu bönkunum og leggja grundvöll að nýrri bankastarfsemi í landinu. Efasemdum um hlut stjórnar og stofnunar í aðdraganda bankahrunsins verður hins vegar ekki eytt fyrr en öll kurl koma til grafar og ljóst er að hvorki mun ríkja friður né traust um starfsemina að sinni.

Ég tel því rétt að ráðherra bankamála og stjórn Fjármálaeftirlits víki til þess að skapa nýjar forsendur fyrir árangursríku starfi.

Ég óska þér velfarnaðar og sigurs í baráttu við erfiðan sjúkdóm og vona að ríkisstjórn og Alþingi takist að ráða fram úr vanda þjóðarinnar á farsælan hátt.

Með vinsemd og virðingu,

Björgvin G. Sigurðsson

Viðskiptaráðherra hefur jafnfræmt tilkynnt ráðuneytisstjóra viðskiptaráðuneytisins að hann afsali sér rétti til biðlauna ráðherra.

Viðskiptaráðuneytinu, 25. janúar 2009.

In english / Á ensku

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta