Hoppa yfir valmynd
1. febrúar 2009 Forsætisráðuneytið

Styrkur til Noregsfarar


Samkvæmt skipulagsskrá fyrir sjóðinn er tilgangur hans ,,að auðvelda Íslendingum að ferðast til Noregs. Í þessu skyni skal veita viðurkenndum félögum, samtökum og skipulögðum hópum ferðastyrki til Noregs í því skyni að efla samskipti þjóðanna, t.d. með þátttöku í mótum, ráðstefnum eða kynnisferðum, sem efnt er til á tvíhliða grundvelli”. Ekki eru veittir styrkir til þátttöku í fjölþjóðlegum mótum, þ.m.t. samnorrænum sem haldin eru til skiptis á Norðurlöndum, og ekki er úthlutað ferðastyrkjum til einstaklinga eða þeirra sem eru styrkhæfir af öðrum aðilum.

Í skipulagsskránni segir einnig, að áhersla skuli lögð á að veita styrki, sem renna til beins ferðakostnaðar, en umsækjendur beri sjálfir dvalarkostnað í Noregi.

Hér með er auglýst eftir umsóknum frá aðilum sem uppfylla framangreind skilyrði. Umsóknum skal skila á eyðublaði sem er á heimasíðu forsætisráðuneytisins, www.forsaetisraduneyti.is/thjodhatidargjof/. Einnig má nálgast eyðublaðið hjá Norðurlandaskrifstofu forsætisráðuneytisins, sími 545-8460.

Umsóknum óskast beint til stjórnar sjóðsins og sendar til [email protected] eða Norðurlandaskrifstofu forsætisráðuneytisins, Hverfisgötu 6, 5. hæð, 150 Reykjavík, eigi síðar en 2. mars 2009.

 

Í forsætisráðuneytinu, 1. febrúar 2009

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta