Hoppa yfir valmynd
5. febrúar 2009 Matvælaráðuneytið

Nýr aðstoðarmaður ráðherra

Jóhann Guðmundsson hefur verið ráðinn aðstoðarmaður Steingríms J. Sigfússonar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra.

Jóhann er búfræðingur að mennt frá Bændaskólanum á Hvanneyri (1976) og Búfræðikandidat frá Búvísindadeild Bændaskólans á Hvanneyri (1981). Hann nam landbúnaðarhagfræði við Landbúnaðarháskóla Svíþjóðar í Uppsölum 1982-1985. Jóhann var kennari í gagnfræðaskóla Siglufjarðar 1981-1982 og starfaði í landbúnaðarráðuneytinu 1985-1995, þar af deildarstjóri frá 1987. Jóhann var fulltrúi landbúnaðarráðuneytisins og samgönguráðuneytisins í Brussel 1995-1998 og starfaði sem skrifstofustjóri í samgönguráðuneytinu 1998-2009.

Jóhann er kvæntur Selmu Huld Eyjólfsdóttur.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta