Stjórn Íslandsbanka hf.
Fjármálaráðuneytið, fréttatilkynning nr. 8/2009
Á hluthafafundi Glitnis hf., nú Íslandsbanka hf. í dag, var kosið í stjórn félagsins í stað stjórnarmanna, sem nýverið hafa látið af störfum.
Stjórn bankans er nú þannig skipuð. Aðalmenn: Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, Martha Eiríksdóttir, Ólafur Ísleifsson, Katrín Ólafsdóttir og Guðmundur R. Jónsson. Varamenn: Helga Björg Ragnarsdóttir, Ellert Kristinsson, Ársæll Valfells, Aðalsteinn Leifsson og Katrín Friðriksdóttir.
Reykjavík 20. febrúar 2009