Hoppa yfir valmynd
24. febrúar 2009 Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið

Forstjóri nýrrar stofnunar

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, hefur ákveðið að skipa Huld Magnúsdóttur forstjóra Þjónustu- og þekkingarmiðstöðvar fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga, til næstu fimm ára frá 1. mars næstkomandi. Alls bárust 25 umsóknir um stöðuna. Ráðningarfyrirtækið Capacent aðstoðaði félags- og tryggingamálaráðuneytið við faglega úrvinnslu og mat á hæfni umsækjenda.

Huld hefur starfað hjá Össuri hf. í 15 ár. Hún hefur langa stjórnunarreynslu að baki og undanfarin ár hefur hún starfað sem framkvæmdastjóri framleiðslu- og dreifingarsviðs Össurar í Bandaríkjunum. Hún er með B.A.-próf í alþjóðasamskiptum frá University of Sussex í Englandi og hefur samhliða starfi sínu í Bandaríkjunum stundað meistaranám í viðskiptum við Viðskiptaháskólann á Bifröst.

Þjónustu- og þekkinarmiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda einstaklinga er ný stofnun sem tók til starfa samkvæmt lögum nr. 160/2008 þann 1. janúar síðastliðinn.

Tenging frá vef ráðuneytisins Heimasíða stofnunarinnar



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta