Hoppa yfir valmynd
27. febrúar 2009 Forsætisráðuneytið

Ríkisstjórnin afgreiddi 6 frumvörp til laga á fundi sínum í dag.

Ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur hefur þar með samþykkt að leggja 29 mál fyrir Alþingi, þar af 26 lagafrumvörp sem gera ráð fyrir breytingum á 42 lögum.

Ríkisstjórnin samþykkti frumvarp dóms og kirkjumálaráðherra um breytingar á lögum um um embætti sérstaks saksóknara sem m.a. er ætlað að efla og styrkja embættið og auka heimildir þess til að kalla eftir upplýsingum og gögnum.

Ríkisstjórnin samþykkti einnig frumvarp fjármálaráðherra um breyting á lögum um tekjuskatt og lögum um staðgreiðslu opinberra gjalda, með það að markmiði að styrkja skattaframkvæmd og vinna gegn skattaundanskoti og frumvarp til laga um breyting á tollalögum, lögum um vörugjald og lögum um virðisaukaskatt með það að markmiði að bregðast tímabundið við brýnni þörf á gjaldaaðlögun fyrirtækja vegna efnahagsástandsins.

Þá samþykkti ríkisstjórnin þrjú frumvörp iðnaðarráðherra: Frumvarp til laga um heimild til samninga um álver í Helguvík, sem mun heimila að gengið verði til samninga við Century Aluminum Company og Norðurál Helguvík ehf vegna byggingar og reksturs álvers í Helguvík. Frumvarp til laga um breytingu á raforkulögum sem frestar framkvæmd ákvæða raforkulaga um aðgreiningu samkeppnis- og sérleyfisþátta til 1. janúar 2010 og frumvarp til laga sem varðar niðurgreiðslur húshitunarkostnaðar.

Ofangreind frumvörp verða í framhaldi send þingflokkum stjórnarflokkanna til afgreiðslu og þingflokki framsóknarflokks til kynningar og í framhaldi lögð fyrir Alþingi.

Á fundinum var einnig kynnt minnisblað forsætisráðherra um setningu Seðlabankastjóra í samræmi við lög sem samþykkt voru frá Alþingi í gær.

 

Reykjavík 27. febrúar 2009



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta