Hoppa yfir valmynd
27. febrúar 2009 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Tímabundin niðurfelling álags vegna skila á virðisaukaskatti hjá aðilum á landbúnaðarskrá

Fjármálaráðuneytið, fréttatilkynning nr. 11/2009

Samkvæmt lögum og reglugerð um virðisaukaskatt er 2. mars 2009 gjalddagi virðisaukaskatts vegna uppgjörs aðila á landbúnaðarskrá vegna viðskipta á síðari hluta ársins 2008.

Sé virðisaukaskattur ekki greiddur á tilskildum tíma skuli aðili sæta álagi til viðbótar til viðbótar þeim skatti sem honum bar að standa skil. Sama gildir ef virðisaukaskattsskýrslu hefur ekki verið skilað eða verið ábótavant og virðisaukaskattur því áætlaður. Þá skal aðili sæta álagi ef endurgreiðsla skatts hefur verið of há. Í lögunum kemur fram að fella megi niður álag ef aðili færir gildar ástæður sér til málsbóta og geti skattyfirvöld metið það í hverju tilviki hvað telja skuli gildar ástæður í þessu sambandi.

Vegna þeirra sérstöku aðstæðna sem að ríkja í þjóðfélaginu telur ráðuneytið að gildar ástæður séu til að beita heimild laganna til tímabundinnar niðurfellingar álags vegna skila á virðisaukaskatti fyrir uppgjör aðila á landbúnaðarskrá vegna síðari hluta ársins 2008.

Ráðuneytið hefur beint þeim tilmælum til skattstjóra að fellt verði tímabundið niður álag vegna skila á ofangreindum virðisaukaskatti sem á gjalddaga er 2. mars 2009 og gildi sú niðurfelling í átta daga eða til 10. mars 2009.

Fjármálaráðuneytinu, 27. febrúar 2009



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta