Áhersla á grænan hagvöxt
,,Norrænu ríkin gegna mikilvægu hlutverki við að knýja fram alþjóðlegar lausnir í loftslagsmálum". Þetta er meðal þess sem segir í sameiginlegri grein forsætisráðherra Norðurlandanna sem sátu norrænt hnattvæðingarþing á Íslandi 26. - 27. febrúar .
Í greininni segir að norrænu ríkin geti sýnt fram á að sameina megi hagvöxt og vistvæna framleiðslu. Takast megi á við viðfangsefni í umhverfismálum með því að styrkja samkeppnishæfni í krafti nýsköpunar og nýrra aðferða og mæta loftslagsvandanum með því að skapa græn störf í vistvænu samfélagi. Þetta kalla forsætisráðherrarnir grænan hagvöxt sem geti orðið öllum heiminum til framdráttar.
Grein forsætisráðherra Norðurlanda.
Frétt forsætisráðuneytisins um hnattvæðingarþingið.