Skipulagsreglur fyrir Reykjavíkurflugvöll auglýstar
Eigendur fasteigna og aðrir hagsmunaaðilar eru hvattir til að kynna sér regludrögin og er unnt að gera athugasemdir til 16. apríl 2009. Skulu þær vera skriflegar og sendar samgönguráðuneytinu, Hafnarhúsinu, við Tryggvagötu, 150 Reykjavík.
Tilgangur skipulagsreglna er að marka skýra stefnu um starfsemi sem heimiluð er innan flugvallarins, tryggja flugöryggi með því að binda hæðartakmarkanir í skipulag og að einfalda umfjöllun og ákvarðanatöku um starfsemi innan vallarins og hæðir mannvirkja innan vallar og í nágrenni hans.
Gerð er nánari grein fyrir reglunum í meðfylgjandi teikningum og texta sem skoða má með því að smella á textann hér að neðan:
- Tillaga um hindrunarfleti – mælikvarði 1:12.500 (JPG)
- Tillaga um hindrunarfleti – mælikvarði 1:25.000 (JPG)
- Landnotkun – mælikvarði 1:4.000 (JPG)