Hoppa yfir valmynd
19. mars 2009 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Fjármálaráðherra skipar stjórn ÁTVR og starfshóp til að gera úttekt á áfengislöggjöfinni

Fréttatilkynning nr. 18/2009

Fjármálaráðherra hefur gert tvenns konar breytingar á reglugerð um Áfengis- og tóbaksverslun ríkisins og tekur hún gildi nú þegar.

Annars vegar er ákvæðum reglugerðarinnar um álagningu stofnunarinnar á áfengi og tóbaki breytt til samræmis við þær breytingar sem gerðar voru á lögum nr. 63/1969, um verslun með áfengi og tóbak, á síðastliðnu haustþingi. Hins vegar eru gerðar breytingar á ákvæðum um stjórn Áfengis- og tóbaksverslunarinnar þannig að stjórnarmönnum er fjölgað út þremur í fimm og stjórnin er skipuð til ársloka 2009.

Fjármálaráðherra hefur skipað eftirtalda einstaklinga í stjórn Áfengis- og tóbaksverslunarinnar.

Aðalmenn:

  • Aðalheiður Héðinsdóttir, formaður
  • Ingibjörg Inga Guðmundsdóttir, varaformaður
  • Eyjólfur Eysteinsson
  • Sigurður M. Magnússon
  • Maríanna Jónasdóttir


Varamenn:

  • Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir
  • Helga A. Erlingsdóttir
  • Bryndís Friðgeirdóttir
  • Dögg Pálsdóttir
  • Þórður Reynisson


Enn fremur hefur fjármálaráðherra ákveðið að skipa starfshóp sem hefur það hlutverk að gera heildstæða úttekt á áfengislöggjöfinni. Meðal verkefna starfshópsins er að leggja mat á lagaumhverfi Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins, áfengisauglýsingar og markaðssetningu áfengis. Starfshópurinn mun verða undir forystu fjármálaráðuneytisins en í starfshópnum eiga einnig sæti fulltrúar dóms- og kirkjumálaráðuneytisins og heilbrigðisráðuneytisins. Miðað er við að starfshópurinn skili tillögum sínum til fjármálaráðherra fyrir lok september næstkomandi.

Fjármálaráðuneytinu, 19. mars 2009

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta