Nr. 10/2009 - Veiðar á síld í Vestmannaeyjahöfn
Ráðuneytið vísar til umfjöllunar um veiði á sýktri síld í Vestmannaeyjahöfn í síðustu viku. Veiðar þessar voru leyfðar tímabundið á grundvelli umsagnar Heilbrigðiseftirlits Suðurlands með skilyrði um sýnatöku af síldinni undir eftirliti Hafrannsóknastofnunarinnar. Veidd voru 500-600 tonn í þessu skyni. Eftir rannókn lagðist stofnunin gegn áframhaldandi veiðum, þar sem hún hefur verulegur áhyggjur af síldarstofninum og telur nokkrar líkur á að síldin gangi út úr höfninni. Talið er að rúmlega fjórðungur síldarinnar (27%) sé ósýktur og mikilvægt að vernda þann hluta. Það þarf því mjög ríka ástæðu til að víkja frá gildandi veiðireglum og verndunarsjónarmiðum. Á þessum grundvelli stöðvaði ráðuneytið veiðarnar.
Bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum hefur með bréfi dags. 21. mars mótmælt þessari stöðvun og krafist áframhaldandi heimildar til veiða og jafnframt hefur borist ítrekuð umsögn Heilbrigðisftirlits Suðurlands, þar sem tekið er undir kröfu bæjarstjórans.
Ráðuneytið hefur nú óskað eftir því við Hafrannsóknastofnunina að afla enn frekari gagna um ástandið í höfninni í samstarfi við heimamenn og Heilbrigðiseftirlit Suðurlands, til þess að unnt sé að meta þá mengunarhættu sem bæjaryfirvöld í Vestmannaeyjum hafa áhyggjur af. Niðurstöður munu liggja fyrir innan fárra daga og mun ráðuneytið þá taka ákvörðun um framhaldið.