Landbúnaðarráðherra kynnir nýja skýrslu um kornrækt og tækifæri hennar
Kynnt var ný skýrsla um kornrækt á Íslandi og mögulega hraðfara eflingu hennar. Þar er m.a. fjallað um stöðu kornræktarinnar, hagkvæmni og markaðslegar forsendur ásamt því að meta framtíðarhorfur greinarinnar.
Kornrækt hefur aukist verulega á síðustu árum og skilar bæði beinum og óbeinum ábata í landbúnaði. Auk þess að auka framleiðni á íslenskum bændabýlum skapar kornræktin bættar forsendur í grasrækt með sáðskiptum sem skipta miklu um magn og gæði heyfengs.
Ráðgjafarstofan Intellecta ehf. hefur í samstarfi við aðila frá Landbúnaðarháskóla Íslands, Bændasamtökum Íslands og Félagi kornbænda og fleiri unnið að greiningu á þeim möguleikum sem felast í kornræktinni og hvaða aðgerðir stjórnvalda væru mikilvægastar til að stuðla að jákvæðri þróun greinarinnar.
Forsendur aukinnar kornræktar eru þegar fyrir hendi og með þeirri hlýnun sem þegar má greina verður kornrækt æ mikilvægari búgrein í landinu. Ræktunin mun með tímanum ná til fleiri tegunda en byggs sem nú er einkum ræktað og sem dæmi má nefna að ræktun vetrarhveitis hefur heppnast nokkur á í röð á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum.
Í skýrslunni eru dregin fram helstu verkefni sem þarf að ráðast í til að stuðla að eflingu þessarar elstu en jafnframt síungu búgrein mannkyns og verður unnið að framgangi þeirra.