Hoppa yfir valmynd
2. apríl 2009 Forsætisráðuneytið

Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins 3. og 4. apríl 2009

Leiðtogafundur Atlantshafsbandalagsins verður haldinn 3. og 4. apríl nk. í tilefni af því að 60 ár eru liðin frá stofnun bandalagsins. Hann verður haldinn beggja vegna landamæra Þýskalands og Frakklands (Strasbourg / Kehl) til marks um vináttu og samstarf þessara tveggja stóru evrópsku grannríkja.

Fundarstaðurinn felur einnig í sér formlega staðfestingu á sögulegri ákvörðun franskra stjórnvalda um að hefja aftur þátttöku í samræmdu herstjórnarkerfi bandalagsins.

Á fundinum verður m.a. fjallað um framtíðarhlutverk Atlantshafsbandalagsins, samskipti þess við Rússland, aðgerðir bandalagsins í Afganistan og Kosóvó og áframhaldandi aðlögun varnarviðbúnaðar að breyttri heimsmynd, Auk almennrar yfirlýsingar fundarins er gert ráð fyrir samþykkt sérstakrar yfirlýsingar um öryggi aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins og annarrar um ástand og horfur í Afganistan.

Á fundinum verða Albanía og Króatía tekin í hóp fullgildra aðildarríkja Atlantshafsbandalagsins en það sýnir glöggt að dyr þess standa áfram opnar evrópskum lýðræðisríkjum sem æskja aðildar og uppfylla skilyrði þar um.

Vegna mikilla anna á innanlandsvettvangi þarf Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, að hverfa frá áformum um þátttöku í leiðtogafundinum og í hennar stað verður Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, fulltrúi ríkisstjórnar Íslands.

Yfirlýsingar leiðtogafundarins verða birtar á heimasíðu Atlantshafsbandalagsins

Reykjavík 2. apríl 2009



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta