Umsækjendur um stöðu seðlabankastjóra og aðstoðarseðlabankastjóra
Með auglýsingu forsætisráðuneytisins, dags. 5. mars sl., voru embætti seðlabankastjóra og aðstoðarseðlabankastjóra auglýst laus til umsóknar í samræmi við ný lög um Seðlabanka Íslands. Umsóknarfrestur rann út 31. mars sl. Fimmtán sóttu um stöðu seðlabankastjóra og sextán um stöðu aðstoðarseðlabankastjóra. Sérstök matsnefnd verður skipuð til að meta hæfni umsækjenda um stöðurnar í samræmi við ákvæði laganna. Ráðgert er að skipað verði í stöðurnar í maí nk.
Umsækjendur um embætti seðlabankastjóra sem uppfylla lágmarksmenntunarskilyrði laganna um háskólapróf eru eftirfarandi:
- Arnór Sighvatsson, hagfræðingur.
- Ásgeir Jónsson, hagfræðingur.
- Jóhann Rúnar Björgvinsson, hagfræðingur.
- Már Guðmundsson, hagfræðingur.
- Rannveig Sigurðardóttir, hagfræðingur.
- Tryggvi Pálsson, hagfræðingur.
- Yngvi Örn Kristinsson, hagfræðingur.
- Þorvaldur Gylfason, hagfræðingur.
Umsækjendur um embætti aðstoðarseðlabankastjóra eru eftirfarandi:
- Arnór Sighvatsson, hagfræðingur.
- Baldur Pétursson, viðskiptafræðingur.
- Daníel Svavarsson, hagfræðingur.
- Halldór Eiríkur S. Jónhildarson, þjóðréttar- og lögfræðingur.
- Haukur Camillus Benediktsson, hagfræðingur.
- Jóhann Rúnar Björgvinsson, hagfræðingur.
- Jón G. Jónsson, viðskiptafræðingur.
- Jón Þ. Sigurgeirsson, viðskiptafræðingur.
- Lilja D. Alfreðsdóttir, hagfræðingur.
- Lúðvík Elíasson, hagfræðingur.
- Ólafur Þórisson, hagfræðingur.
- Rannveig Sigurðardóttir, hagfræðingur.
- Tamara Lísa Roesel, viðskiptafræðingur
- Tryggvi Pálsson, hagfræðingur
- Yngvi Örn Kristinsson, hagfræðingur.
- Þorsteinn Þorgeirsson, hagfræðingur.