Auglýsing sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins um veitingu leyfa til hrefnuveiða árið 2009
Skilyrði fyrir veitingu leyfa til hrefnuveiða eru eftirfarandi:
- Að minnsta kosti einn úr áhöfn hafi reynslu af hrefnuveiðum.Við mat á því hvort aðili hafi reynslu af hrefnuveiðum er sú krafa gerð að aðili hafi a.m.k. verið samfellt í þrjá mánuði skytta á hrefnuveiðibát. Heimilt er Fiskistofu að meta jafngilda annarskonar reynslu eða þekkingu svo að hún fullnægi áskilnaði skv. þessari grein.
- Skyttur sem annast veiðar og aflífun dýra skulu hafa sótt viðurkennt námskeið í meðferð skutulbyssa og sprengiskutla og í aflífunaraðferðum við hvalveiðar. Auk þessa skal skytta hafa fullnægjandi skotvopnaleyfi.
Þá er kveðið á um veiðiaðferðir og veiðibúnað sem skip sem ætluð eru til hrefnuveiða skulu vera búin í ofangreindri reglugerð um hvalveiðar.
Umsóknir um leyfi til hrefnuveiða skulu sendar sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytinu, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík.