Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra ræðir við stjórnvöld og fjölmiðla í Bandaríkjunum
Gylfi Magnússon, viðskiptaráðherra, ávarpaði í dag fund Íslensk-ameríska verslunarráðsins sem fram fór í Scandinavia House í New York. Í ræðu sinni rakti Gylfi aðdraganda bankahrunsins á Íslandi, gerði grein fyrir þeim aðgerðum sem íslensk stjórnvöld hafa gripið til í samstarfi við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (AGS), og fór yfir stöðu og langtímahorfur í íslensku efnahagslífi. Gylfi undirstrikaði að íslenskt viðskiptalíf væri starfhæft þrátt fyrir það mikla efnahagsáfall sem riðið hefði yfir, og þó að næstu tvö ár yrðu erfið þá væru langtímahorfur á Íslandi tiltölulega jákvæðar. Íslensk fyrirtæki væru því reiðubúin að eiga áframhaldandi gott viðskiptasamstarf við Bandaríkin.
Í gær 6. apríl átti viðskiptaráðherra fundi í Washington D.C. í bandaríska utanríkisráðuneytinu, viðskiptaráðuneytinu og á skrifstofu viðskiptafulltrúa Bandaríkjanna. Auk þess hitti hann fulltrúa bandaríska fjármálaráðuneytisins og AGS. Tilgangur fundanna með bandarískum stjórnvöldum var að gera grein fyrir framvindu efnahagsáætlunar íslenskra stjórnvalda og AGS, og gera grein fyrir langtímahorfum í íslensku efnahagslífi.
Í ferð sinni til Bandaríkjanna veitti viðskiptaráðherra bandarískum fjölmiðlum viðtöl um efnahagsástandið og langtímahorfur á Íslandi, m.a. Fox News, Bloomberg og CNBC.
Viðskiptaráðuneytinu, 7. apríl 2009