Nefnd um þróun Evrópumála lýkur störfum
Nefnd um þróun Evrópumála lauk störfum í dag og skilaði skýrslu í samræmi við fyrirmæli verkefnaskrár ríkisstjórnarinnar og verður kynnt þar. Nefndin hefur starfað í eitt ár og var skipuð fulltrúum stjórnmálaflokka á Alþingi og vinnumarkaðarins. Formenn voru þeir Ágúst Ólafur Ágústsson, alþingismaður, og Illugi Gunnarsson, alþingismaður.
Nefndin komst ekki að sameiginlegri niðurstöðu og fylgja skýrslunni sérálit þeirra sem í nefndinni sátu.
Í skýrslunni er m.a.:
- Yfirlit yfir framkvæmd á tillögum fyrri Evrópunefndar í Stjórnarráði Íslands.
- Greinargerð um áhrif Lissabon-samningsins á stöðu EES og Íslands
- Frásögn af ferð Nefndar um þróun Evrópumála til Brussel
- Greinargerð um möguleika Íslands á upptöku evru án aðildar að ESB
- Samantekt á svörum álitsgjafa
- Greinargerð Hagfræðistofnunar H.Í. um gjaldmiðlamál
Sjá nánar um nefndina á vefsíðu ráðuneytisins: evropumal.forsaetisraduneyti.is
Hægt er að nálgast skýrsluna sjálfa í ráðuneytinu, en prófarkarlesin útgáfa verður sett á vefsíðuna eftir helgi.
Reykjavík 17. apríl 2009