Hoppa yfir valmynd
22. apríl 2009 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Átak til að rannsaka hugsanleg brot á skattalögum

Fréttatilkynning nr. 24/2009

Fjármálaráðuneytið hefur í samvinnu við skattrannsóknarstjóra og ríkisskattstjóra ákveðið að hafið verði sérstakt átak til að rannsaka hugsanleg brot á skattalögum í tengslum við hrun bankanna og í aðdraganda þess.

Í kjölfar hruns bankanna í október á síðastliðnu ári hafa stjórnvöld brugðist við með ýmsu móti í því markmiði að rannsaka hvað úrskeiðis fór í aðdraganda þess og hvort einhver þau brot hafi verið framin er varði refsingu. Þannig hafa verið sett á fót rannsóknarnefnd Alþingis og embætti sérstaks saksóknara með aðkomu erlendra sérfræðinga, auk þess sem Fjármálaeftirlitið hefur verið eflt verulega.

Í lögum um embætti sérstaks saksóknara kemur fram að hann skuli eftir þörfum hafa samstarf við m.a. Fjármálaeftirlit og skattrannsóknarstjóra ríkisins en ekki er gert ráð fyrir að hann taki skattamál til rannsóknar að eigin frumkvæði heldur skuli þau mál sæta rannsókn á grundvelli kæru frá viðeigandi eftirlitsstofnunum. Þannig muni hann vísa til skattrannsóknarstjóra þeim þáttum máls sem berast frá Fjármálaeftirlitinu og varðað gætu refsiverð brot gegn skattalögum.

Í viðræðum fjármálaráðuneytisins við skattrannsóknarstjóra og ríkisskattstjóra hefur komið fram að afar brýnt sé að hraða rannsókn hugsanlegra skattalagabrota í tengslum við fall bankanna og í starfsemi þeirra í aðdraganda fallsins hvort sem er hjá eigendum, stjórnendum eða starfsmönnum bankanna og félaga sem þeim tengjast. Í ljósi þess telja þessir aðilar æskilegt að aukinn þungi verði lagður í þetta verkefni hjá stofnunum skattsins og eru sammála um að gert verði sérstakt átak í þessum efnum í samvinnu þessara embætta. Verður skipaður starfshópur sérfræðinga þessara stofnana og annarra stofnana skattkerfisins til að vinna sérstaklega að þessum verkefnum. Starfshópurinn mun starfa innan embættis skattrannsóknarstjóra og honum stjórnað af manni með mikla reynslu af skatteftirliti og endurskoðun.

Í framhaldi af þessu hefur því verið beint til skattrannsóknarstjóra og ríkisskattstjóra að hrinda framangreindu af stað og setja á laggirnar þann starfshóp sem rætt hefur verið um við embættin og að í honum starfi færustu sérfræðingar embættanna á þessu sviði.

Alþingi samþykkti nýverið tillögur fjármálaráðherra um breytingar á skattalögum sem styrkja munu skattframkvæmd verulega með auknu aðgengi skattyfirvalda að upplýsingum frá fjármálastofnunum og skattaráðgjöfum. Er vonast til að þessi nýju lagaákvæði auðveldi verkefni starfshópsins og geri starf hans árangursríkara.

Auk þessa verkefnis verður á næstunni í samvinnu við skattyfirvöld unnið að breytingum á starfsemi stofnana þeirra með það að markmiði að efla skatteftirlit og skattrannsóknir einkum að því er tekur til eftirlits með skattalegum þáttum fjármálastarfsemi og alþjóðlegra viðskipta.

Fjármálaráðuneytinu, 22. apríl 2009

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta