Svandís Svavarsdóttir tekur við embætti umhverfisráðherra
Svandís Svavarsdóttir tók við embætti umhverfisráðherra í dag, sunnudaginn 10. maí 2009, af Kolbrúnu Halldórsdóttur sem gegnt hefur embætti umhverfisráðherra síðan 1. febrúar 2009.
Svandís var kosin alþingismaður fyrir Vinstrihreyfinguna grænt framboð í Reykjavíkurkjördæmi Suður 25. apríl 2009.
Svandís er fædd 24. ágúst 1964. Eiginmaður Svandísar er Torfi Hjartarson lektor og eiga þau fjögur börn. Hún lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum við Hamrahlíð 1983 og BA prófi í almennum málvísindum og íslensku frá Háskóla Íslands 1989 og stundaði MA-nám í íslenskri málfræði 1989-1993.
Svandís hefur m.a. starfað sem kennslustjóri í táknmálsfræði og táknmálstúlkun við Háskóla Íslands 1994-1998, hjá Samskiptamiðstöð heyrnarlausra og heyrnarskertra við rannsóknir, ráðgjöf og stjórnun 1998-2005 og framkvæmdastjóri Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs 2005-2006.
Svandís hefur verið borgarfulltrúi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs frá 2006.
Samstarfsyfirlýsing ríkisstjórnar Samfylkingar og Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs.