Hoppa yfir valmynd
14. maí 2009 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Styrkur til náms í Japan (grunnnám á háskólastigi)

Stjórnvöld í Japan ætla að veita einum íslenskum ríkisborgara styrk til grunnnáms á háskólastigi. Áhugasamir sem eru fæddir milli 2. apríl 1988 og 1. apríl 1993 og munu hafa útskrifast úr framhaldsskóla fyrir mars 2010 teljast hæfir til að sækja um.

Reykjavík, 27. apríl 2009

MEXT

Styrkur til náms í Japan (grunnnám á háskólastigi)

Stjórnvöld í Japan ætla að veita einum íslenskum ríkisborgara styrk til grunnnáms á háskólastigi.

Áhugasamir sem eru fæddir milli 2. apríl 1988 og 1. apríl 1993 og munu hafa útskrifast úr framhaldsskóla fyrir mars 2010 teljast hæfir til að sækja um.

Styrkþegar fá eins árs undirbúingskennslu í japönsku, sem er innifalin í styrknum.

MEXT (Menntamálaráðuneyti) Japans mun sjá fyrir flugferðum fram og til baka, skólagjöldum og námsstyrk til þriggja ára frá og með apríl 2010.

Samkvæmt fjárhagsárinu 2009 munu mánaðarlegar styrkgreiðslur vera 125.000 yen. (Upphæðir kunna að vera breytilegar.)

Námsleiðir sem koma meðal annars til greina eru:

  1. Félags- og hugvísindi
    Félags- og hugvísindi A: lögfræði, stjórnmálafræði, uppeldisfræði, félagsfræði, bókmenntir, sagnfræði, japönsk fræði ofl.
    Félags- og hugvísindi B: Hagfræði og Viðskiptafræði.
  2. Náttúruvísindi Náttúruvísindi A: Raunvísindi, rafmagnsverkfræði, vélaverkfræði, byggingaverkfræði og arkítektúr, efnafræði, ofl..
    Náttúruvísindi B: Umhverfisfræði, lyfjafræði, and líffræði.
    Náttúruvísindi C: Læknisfræði og tannlækningar *Sjá nánari upplýsingar í leiðarvísi 1.FIELDS OF STUDY.

Umsækjendur þurfa að vera við góða heilsu og kunna eitthvað í japönsku eða vera tilbúnir að leggja sig fram við að læra málið. Þar að auki þurfa þeir að vera tilbúnir til að leggja af stað, og koma til Japans milli 1. og 7. apríl 2010.

Sendiráð Japans á Íslandi mun sjá um fyrsta úrtak umsækjenda. Lokaákvörðun verður svo tekin af Menntamálaráðurneyti Japans (MEXT).

Fullgerðar umsóknir þurfa að berast til Sendiráðs Japans eigi síðar en 26. juní 2009. Þeir umsækjendur sem koma til greina munu þreyta próf í ensku, stærðfræði og japönsku, og verða boðaðir í viðtal til sendiráðsins í byrjun júlí 2009.

Umsóknareyðublöð og frekari leiðbeiningar má nálgast á síðuna:

http://www.studyjapan.go.jp/en/toj/toj0307e.html - 1

(Vinsamlegast athugið greinina “Undergraduate students”)

Allar frekari upplýsingar eru veittar hjá:

Sendiráði Japans á Íslandi
Sími: 510-8600
Fax: 510-8605
Tölvupóstur: [email protected]



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta