Fyrsti starfsdagur Ráðgjafarstofu í Sóltúni
Ný starfsstöð Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna var opnuð í Sóltúni 26 í dag. Töluverður erill var frá því að opnað var kl. 9 í morgun og í lok dags höfðu rúmlega 30 manns leitað sér ráðgjafar.
Síðdegis hitti Árni Páll Árnason, félags- og tryggingamálaráðherra, starfsfólk Ráðgjafarstofu í Sóltúni og kynnti sér starfsemina. Þar starfa nú 10 starfsmenn. Jafnframt er verið að fjölga starfsfólki Ráðgjafarstofunnar á Hverfisgötu og verða starfsmenn á starfsstöðvum Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna alls 29 innan skamms.
Þeir sem leita til starfsstöðvar Ráðgjafarstofunnar í Sóltúni geta komið fyrirvaralaust og þurfa ekki að panta tíma í ráðgjöf. Þar eru veittar grundvallarleiðbeiningar um möguleg úrræði fyrir fólk í greiðsluerfiðleikum. Ef þörf er fyrir frekari aðstoð er fólki vísað áfram til Ráðgjafarstofunnar á Hverfisgötu þar sem farið er nánar í saumana á aðstæðum hvers og eins.
Þess er vænst að efling Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna muni styrkja starfsemina verulega, bæta þjónustu og stytta biðtíma.