Norræn námstefna um jafnréttismál
Jafnrétti í skólum og þróun norrænnar jafnréttislöggjafar er umfjöllunarefni tveggja daga námstefnu sem haldin verður í Færeyjum 3.-4. júní. Námstefnan er haldin á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar að frumkvæði Íslands sem fer með formennsku í nefndinni árið 2009.
Nánari upplýsingar um námstefnuna er að finna á nýjum vef sem opnaður hefur verið á vegum Jafnréttisstofu í tilefni af formennskuári Íslendinga. Þar eru kynnt öll helstu verkefni og viðburðir á sviði jafnréttismála sem fyrirhugaðir eru á þessu ári.
Nánari upplýsingar á vef Jafnréttisstofu