Æskulýðssjóður fyrsta úthlutun 1. febrúar 2009
Menntamálaráðherra hefur samþykkt styrkveitingar úr Æskulýðssjóði fyrstu úthlutun 1. febrúar 2009 að fjárhæð 2.270.000 kr. til 7 verkefna. Alls bárust 43 umsóknir um styrki að fjárhæð 25.286.500 kr. Stjórn sjóðsins fór yfir allar umsóknir og niðurstaða stjórnar var að 27 umsóknir uppfylltu skilyrði til umsóknar um styrk úr Æskulýðssjóði en 16 uppfylltu ekki skilyrðin. Þeir sem hlutu styrki úr Æskulýðssjóði við fyrstu úthlutun 1. febrúar árið 2009 eru eftirtaldir:
Nafn umsækjanda |
Styrkur |
KFUM og KFUK á Íslandi - Er hægt að vera ungur í 110 ár? |
400.000 |
Skátafélagið Ægisbúar - Vesturbærinn – bærinn okkar |
120.000 |
Skátafélagið Klakkur - Vetur, sumar, vor og haust, kennsluefni fyrir útikennslu |
500.000 |
Skátasamband Reykjavíkur - Starfsþjálfun starfsmanna skátafélaga |
400.000 |
Bandalag íslenskra skáta - Handverk í skátastarfi |
200.000 |
KFUK og KFUK á Íslandi - Þjálfun leiðtoga fyrir TEN SING fjöllistastarf |
500.000 |
Æskulýðfélag Hjallakirkju - Upplifunarbúðir Æskulýðsfélags Hjallakirkju |
150.000 |
Samtals |
2.270.000 |