Átak í atvinnumálum hefur þegar skilað yfir 2.200 störfum
Iðnaðarráðuneytið hefur lokið fyrstu samantekt á árangri sérstaks átaks ríkisstjórnarinnar í atvinnumálum sem miðar að því að draga úr atvinnuleysi með sköpun allt að 6000 ársverka á næstu misserum. Þótt ekki séu omnar tæmandi upplýsingar um alla þætti aðgerðanna er niðurstaðan samt sem áður sú að nú þegar má rekja um 2.200 til 2.500 störf til átaksins.
Stærsti einstaki liðurinn í verkefninu er í byggingariðnaði þar sem margt bendir til að fleiri störf verði til en þau 1.700 sem reiknað var með í upphafi. Rýmkun á lánum til viðhalds félagslegra íbúða rýmkaðar hefur skilað samningum upp á um 300 ársverk á þessu ári og næsta. Hröðun útboða á leiguhúsnæði fyrir stofnanir ríkisins hefur skilað verkefnum upp á 274 ársverk. Í báðum tilfellum eru enn fleiri verkefni í farvatninu. Þá eru um 300 störf við byggingu tónlistar- og ráðstefnuhúss.
Sá liður sem kemur kannski mest á óvart er árangur af hækkuðu endurgreiðsluhlutfalli virðisaukaskatts vegna kvikmyndaverkefna hér á landi. Samantekt frá íslensku framleiðslufyrirtækjunum leiðir í ljós að 500 störf tengjast kvikmyndagerð hér á landi.
Ánægjulegt er að sjá þróunina í starfsemi frumkvöðlasetra sem Nýsköpunarmiðstöð Íslands tengist með einum eða öðrum hætti. Fyrir hrun bankakerfisins störfuðu samtals 35 manns hjá fyrirtækjum í tveimur frumkvöðlasetrum. Nú eru frumkvöðlasetrin orðin 8 og þar starfa 165 manns hjá 67 fyrirtækjum.
Verkefninu Starfsorku, sem gerir nýsköpunarfyrirtækjum kleift að ráða sérfræðinga af atvinnuleysisskrá í allt að hálft ár með tilstyrk Vinnumálastofnunar, hefur verið mjög vel tekið. Þegar er búið að heimila ráðningu á 130 af atvinnuleysisskrá til 55 fyrirtækja þar sem þessir starfsmenn munu sinna nýsköpun og þróun skv. þríhliða samningi starfsmanns, fyrirtæki og Vinnumálastofnunar.
Hópurinn sem vann að átakinu mun nú koma saman á ný undir forystu Kristjáns Skarphéðinssonar, ráðuneytisstjóra í iðnaðarráðuneytinu, fara yfir stöðuna og leggja til ný verkefni. Átakið er til viðbótar við það meginverkefni ríkisstjórnarinnar í atvinnumálum til lengri tíma sem felst í því að stuðla að verðmætasköpun í atvinnulífinu með því að skapa forsendur fyrir stöðugra gengi, hraðari lækkun vaxta og afnámi gjaldeyrishafta í áföngum.
Frekari upplýsingar veitir Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra