Hoppa yfir valmynd
19. júní 2009 Fjármála- og efnahagsráðuneytið

Landsvirkjun og ríkið gera viðbúnaðarsamning

Fréttatilkynning nr. 39/2009

Mikil óvissa hefur ríkt í íslensku efnahagslífi frá falli viðskiptabankanna í október sl. Á sama tíma hefur verið mikil óvissa á alþjóðlegum fjármálamörkuðum sem hefur leitt til þess að matsfyrirtæki hafa lækkað lánshæfiseinkunnir fjölmargra aðila. Lánshæfiseinkunnir íslenska ríkisins og Landsvirkjunar eru þar engin undantekning og hafa lækkað í BBB- hjá Standard & Poor´s og Baa1 hjá Moody’s Investor Service.

Landsvirkjun hefur haft lánshæfiseinkunn síðan 1998 í því skyni að auðvelda fyrirtækinu aðgang að lánsfé en Landsvirkjun hefur frá stofnun fjármagnað virkjunarframkvæmdir að mestu leyti á erlendum markaði.  Matsfyrirtækin hafa frá upphafi gefið Landsvirkjun sömu lánshæfiseinkunn og íslenska ríkinu.

Erlendir aðilar hafa nokkrar áhyggjur af kerfisáhættu í íslensku efnahagslífi, m.a. vegna óvissu á alþjóðlegum fjármálamörkuðum.  S&P´s setti lánshæfiseinkunn Landsvirkjunar á athugunarlista hinn 8. maí sl. og metur horfur neikvæðar.  Í rökstuðningi er einkum lögð áhersla á að óvissa sé um hvort íslenska ríkið muni koma tímanlega til aðstoðar ef fyrirtækið lendir í fjárhagserfiðleikum.  Til að bregðast við og draga úr áhyggjum erlendra aðila hafa Landsvirkjun og ríkið gert með sér viðbúnaðarsamning. Samningurinn er með þeim hætti að ef Landsvirkjun hefur ekki nægjanlegt fjármagn til að mæta vaxtagreiðslum eða afborgunum lána mun Seðlabankinn afhenda fyrirtækinu erlendan gjaldeyri og Landsvirkjun afhenda bankanum krónur eða skuldabréf í staðinn.  Fjárhæð samningsins er að hámarki  300 milljónir Bandaríkjadala og rennur hann út 1. júlí 2011.

Lausafé Landsvirkjunar er nú um 90 milljónir Bandaríkjadala en að auki hefur fyrirtækið aðgang að erlendu veltiláni.  Að veltiláninu standa fjórtán alþjóðlegar fjármálastofnanir, þar á meðal Barclay’s, Citigroup, JP Morgan og Société Générale.  Landsvirkjun hefur því mikinn aðgang að lausafé í erlendri mynt sem ásamt fé úr rekstri dugar til greiðslu vaxta og afborgana út árið 2010.  Því eru hverfandi líkur á því að reyna muni á viðbúnaðarsamninginn.

Nánari upplýsingar veita:
Stefán Pétursson, framkvæmdastjóri fjármálasviðs Landsvirkjunar, í síma 515-9000, netfang: [email protected] og
Hjördís Vilhjálmsdóttir, ráðgjafi fjármálaráðherra, í síma 545-9200, netfang: [email protected].

 



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta