Skipun umsjónaraðila
Fréttatilkynning nr. 37
Fjármálaráðherra hefur að tillögu Fjármálaeftirlitsins skipað Lífeyrissjóði starfsmanna Kópavogsbæjar umsjónaraðila sbr. 1. mgr. 46. gr. laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða vegna gruns um að ákvarðanir stjórnar sjóðsins um fjárfestingar hafi ekki verið í samræmi við ákvæði laga nr. 129/1997 og ítrekuðum kröfum Fjármálaeftirlitsins um úrbætur hafi ekki verið sinnt.
Umsjónaraðili Lífeyrissjóðs starfsmanna Kópavogsbæjar frá og með 19. júní 2009 er Elín Jónsdóttir, lögfræðingur, og tekur hún við réttindum og skyldum stjórnar og framkvæmdastjóra fram til 19. ágúst 2009.
Fjármálaráðuneytinu, 19. júní 2009