Hoppa yfir valmynd
23. júní 2009 Mennta- og barnamálaráðuneytið

Auglýsing um styrki til námskeiða í íslensku haustið 2009

Auglýst er eftir umsóknum um styrki til námskeiða í íslensku sem ekki eru hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi.

Auglýst er eftir umsóknum um styrki til námskeiða í íslensku sem ekki eru hluti af almennu námi á grunn- eða framhaldsskólastigi. Markmið með styrkjunum er að gefa öllum sem búsettir eru á Íslandi færi á að öðlast þá færni í íslensku að þeir geti orðið virkir samfélagsþegnar. Stefnt er að því að úthluta allt að 40 milljónum króna til þessara nota haustið 2009.

Fræðsluaðilar og fyrirtæki sem bjóða starfsmönnum sínum upp á skipulagða kennslu í íslensku og eru á fyrirtækjaskrá geta sótt um styrki. Fyrirtæki, sem ekki eru fræðsluaðilar, þurfa að láta undirritaðan samning við hæfan fræðsluaðila er annast kennsluna fylgja umsókninni.

Umsækjandi skal veita menntamálaráðuneyti upplýsingar um markmið námsins, kennslustundafjölda, kennslutíma, fjölda námskeiða, fjölda þátttakenda og námskeiðskostnað.

Aðilar sem bjóða upp á fleiri en fimm námskeið skila aðeins inn einu umsóknareyðublaði en því skal fylgja sundurliðað yfirlit þar sem fram koma upplýsingar um hvert námskeið og heildarfjölda námskeiða, heildarfjölda þátttakenda, samanlagðan nemendastundafjölda, áætlaðan kostnað og heildarupphæð sem sótt er um.

Að námskeiði loknu, áður en til lokagreiðslu styrks kemur og eigi síðar en 15.desember 2009, ber að senda inn lista með nöfnum og kennitölum nemenda sem sóttu námskeiðið og ber þá að taka mið af þeim sem mættu í 75% kennslustunda að lágmarki. Fækki þátttakendum á námskeiðum frá því sem upphaflega var áætlað skerðist styrkurinn hlutfallslega sem nemur fækkuninni.

Sérstök athygli er vakin á því að ráðuneytið fer fram á að styrkþegar skili inn sérstakri sjálfsmatsskýrslu samkvæmt nánari leiðbeiningum sem sendar verða þeim sem er úthlutað styrkjum.

Ráðuneytið hefur eftirlit með gæðum námskeiðahaldsins og áskilur sér rétt til að kalla eftir frekari upplýsingum er varða rekstur og faglega framkvæmd námskeiða. Þar með talið upplýsingar um reikningshald, fjármögnun, greiðslur nemenda og viðveruskráningu, sem og upplýsingar um kennara, menntun þeirra og starfsreynslu og námsefni sem stuðst er við.

Vakin er sérstök athygli á að umsækjendum er gert að sækja um á rafrænu formi.

Umsóknarfrestur er til 20. júlí 2009




Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta