Hoppa yfir valmynd
8. júlí 2009 Matvælaráðuneytið

Ísland þátttakandi í 14 verkefnum innan Norðurslóðaáætlunar

Fréttatilkynning

Ísland þátttakandi í 14 verkefnum innan Norðurslóðaáætlunar

Fjórði umsóknarfrestur

Á stjórnarfundi Norðurslóðaáætlunar 2007-2013 þann 5. júní s.l. voru til afgreiðslu 9 aðalverkefnisumsóknir og þar af voru Íslendingar þátttakendur í 7 . Af þessum 7 verkefnum voru 5 verkefni samþykkt (>70% árangur), öll með ákveðnum skilyrðum sem verkefnin eru nú að vinna úr. Verkefnin eru:

  • Roadex Network Implementing Accessibility. Samstarfsverkefni Svíþjóðar, Finnlands, Skotlands, Írlands, Svíþjóðar, Íslands, Grænlands, Noregs og Kanada. Íslenskur þátttakandi er Vegagerð ríkisins í samstarfi við verkfræðistofur og fleiri.
  • New Plants for the Northern Periphery Market. Samstarfsverkefni Svíþjóðar, Finnlands, Skotlands og Íslands. Íslensku þátttakendurnir eru Landbúnaðarháskólinn Hvanneyri í samstarfi við garðyrkjustöðvar og fyrirtæki.
  • Rural Transport Solutions. Samstarfsverkefni Svíþjóðar, Finnlands, Skotlands og Íslands. Íslensku þátttakendurnir eru Þróunarstofa austurlands og Fjarðabyggð í samstarfi við Vegagerðina.
  • The THING Project – THing sites International Networking Group. Samstarfsverkefni Noregs, Íslands, Skotlands og Færeyja. Íslenski þátttakandinn er Þjóðgarðurinn Þingvöllum í samstarfi við tengda aðila.
  • SMALLEST –Solutions for Microgeneration to Allow Energy Saving Technology. Samstarfsverkefni Skotlands, Finnlands, Norður Írlands, Færeyja, Svíþjóðar, Íslands og Grænlands. Íslenski þátttakandinn er Þróunarstofa austurlands í tengslum við fjölmarka aðila innan orkugeirans.

Alls hafa borist 54 umsóknir um aðalverkefni á þeim 4 umsóknarfrestum sem liðnir eru og þar af hafa 27 verkefni verið samþykkt. Íslendingar hafa verið þátttakendur í 27 umsóknum og þar af hafa 14 verið samþykkt eða 52%. Samtals hafa borist liðlega 50 umsóknir um forverkefni, en þau hafa þann megin tilgang að vinna að gerð aðalumsókna, leita samstarfsaðila og frágangi mótfjármögnunar.

Fyrri verkefni:

  • Retail in Rural Regions.Samstarfsverkefni Íslands, Írlands, Færeyja, og Skotlands þar sem Rannsóknarsetur verslunarinnar Háskólanum Bifröst er þátttakandi í samstarfi við verslanir, Samtök verslunar, sveitarfélög og atvinnuþróunarfélög.
  • The Sea as Our Neighbour: Sustainable Adaption to Climate Change in Coastal Communities and Habitats on Europe‘s Northern Periphery – Coast Adapt. Samstarfsverkefni Íslands, Norður Írlands, Írlands, Skotlands og Noregs þar sem Háskóli Íslands, Sveitarfélagið Árborg og Mýrdalshreppur eru þátttakendur en meðal tengdra aðila eru Siglingastofnun, Veðurstofa Íslands, Samtök sveitarfélaga, Skipulagsstofnun og fleiri.
  • North Hunt, Sustainable Hunting Tourism. Samstarfsverkefni Íslands, Finnlands, Svíþjóðar, Skotlands og Kanada. Íslenskir þátttakendur eru Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri, Rannsóknasetur ferðaþjónustunnar, Veiðistjórnarsvið Umhverfisstofnunar.
  • NEED, Northern Environment Education Development. Samstarfsverkefni Íslands, Finlands, Noregs og Írlands. Íslenskir þáttakendur eru Fræðasetur Háskóla Íslands, Höfn Hornafirði, Háskólasetrið Húsavík, Þjóðgarðurinn Jökulsárgljúfrum, Þróunarfélag Austurlands, Kirkjubæjarstofa, Þjóðgarðurinn Skaftafelli og sveitarfélögin Hornafjörður, Skaftárhreppur, Fljótsdalshérað og Norðurþing.
  • PELLETime – Solutions for competitive pellet production in medium size enterprises. Samstarfsverkefni Íslands, Finnlands og Skotlands. Íslenskir þátttakendur eru Héraðsskógar, Austurlandsskógar og Skógrækt ríkisins
  • Economuseum Northern Europe. Samstarfsverkefni Íslands, Færeyja, Norður Írlands, Írlands, Noregs og Kanada. Íslenskir þátttakendur eru Fruman Nýheimum, Höfn Hornafirði og Fræðslunet Austurlands.
  • Co-Safe, The cooperation for safety in sparsely populated areas. Samstarfsverkefni Íslands, Svíþjóðar, Finnlands, Skotlands og Grænlands. Íslenskir þáttakendur eru FSA Háskólasjúkrahús, Akureyri og Sjúkraflutningaskólinn í samstarfi við fjölmarga innlenda aðila.
  • OLEII, Our Life as Elderly- implementation. Samstarfsverkefni Íslands, Svíþjóðar, Noregs og Færeyja. Íslenskir þátttakendur eru Akureyrarbær, Hafnarfjarðarbær og Heilbrigðisstofnun Suðausturlands.
  • Northcharr, Sustainable Aquaculture of Arctic charr. Samstarfsverkefni Íslands, Svíþjóðar og Noregs. Íslenskir þátttakendur eru Hólalax ehf, Rifós ehf, Íslandsbleikja ehf, Silfurstjarnan ehf, Klausturbleikja ehf, Skagafjarðarveitur, FISK-Seafood, Akvaplan-Niva og Matís.

Starfssvæði og tengiliður áætlunarinnar

Norðurslóðaáætlun 2007-2013 nær landfræðilega yfir mjög víðfeðmt svæði en þátttökulönd eru Evrópusambandslöndin, Skotland, Norður Írland, Svíþjóð, Finnland og Írland auk Noregs, Íslands, Grænlands og Færeyja. Nánari upplýsingar er að finna á heimsíðu Byggðastofnunar http://www.byggdastofnun.is/ og Norðurslóðaáætlunar www.northernperiphery.eu

Tengiliður áætlunarinnar er Byggðastofnun, Þórarinn Sólmundarson [email protected]



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta