Hoppa yfir valmynd
9. júlí 2009 Matvælaráðuneytið

Nr. 25/2009 - Makrílveiðar stöðvaðar

Með vísan til 3. mgr. 1. gr. reglugerðar nr. 283/2009 um stjórn makrílveiða íslenskra skipa árið 2009 hefur Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytið falið Fiskistofu að fella úr gildi öll leyfi til makrílveiða frá kl. 18:00 í dag, 8. júlí 2009. Jafnframt hefur reglugerð um stjórn veiða íslenskra skipa úr norsk-íslenska síldarstofninum verið breytt á þann hátt að veiðar úr þeim stofni eru einungis heimilar fyrir norðan 66°N og þar má makrílafli ekki fara yfir 10% af heildarafla á hverju þriggja vikna tímabili. Tekur þessi reglugerðarbreyting gildi á miðnætti.

Er gripið til þessara ráðstafana þar sem afar hratt hefur gengið á útgefna hámarksaflaviðmiðun í markíl á síðustu dögum en það er 112 þúsund lestir. Ennfremur er ljóst að erfitt verður að veiða norsk-íslenska síld án þess að makríll fáist sem meðafli og á þeim grunni þykir ástæða til að stöðva beinar veiðar á makríl með fyrrgreindum hætti.



Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum

Ef um er að ræða áríðandi erindi til borgaraþjónustu utanríkisráðuneytisins þá skal senda póst á [email protected]

Upplýsingar um netföng, símanúmer og staðsetningu ráðuneyta