Menntamálaráðherra hefur samþykkt styrkveitingar úr Æskulýðssjóði vegna annarrar úthlutunar 1. apríl 2009
Menntamálaráðherra hefur samþykkt styrkveitingar úr Æskulýðssjóði vegna annarrar úthlutunar 1. apríl 2009 að fjárhæð 1.735.000 kr. til 9 verkefna. Alls bárust 38 umsóknir um styrki að fjárhæð 20.835.000. kr. Stjórn sjóðsins fór yfir allar umsóknir og niðurstaða stjórnar var að 14 umsóknir uppfylltu skilyrði til umsóknar um styrk úr Æskulýðssjóði en 24 uppfylltu ekki skilyrðin. Þeir sem hlutu styrki úr Æskulýðssjóði við aðra úthlutun 1. apríl árið 2009 eru eftirtaldir:
Nafn umsækjanda | Styrkur |
KFUM og KFUK á Akureyri - Ígrunduð hlutverk sjálfboðaliða | 200.000 |
KFUM og KFUK á Íslandi - Átaksverkefni fyrir atvinnulaust ungt fólk | 230.000 |
KFUM og KFUK á Íslandi - Inn í aðra veröld | 450.000 |
Kristilega skólahreyfingin - Alþjóðleg leiðtogaþjálfun stúdenta | 150.000 |
Kristileg skólasamtök - Sumarsamverur fyrir ungt fólk á framhaldsskólaaldri | 100.000 |
Skátafélag Akraness - Þori, get og vill | 105.000 |
Skátafélagið Örninn, æskulýðsstarf Setbergsprestakalls - Kassabílarallý Grundarfjarðar og nærsveita | 50.000 |
Ungmennadeild Reykjavíkurdeildar Rauða kross Íslands - Sumarmiðstöð ungs fólks | 250.000 |
Ungmennadeild Reykjavíkurdeildar Rauðakross Íslands - Vinanet | 200.000 |
Samtals: |
1.735.000 |